Fimmtudagar eru Gulldagar á Café Aroma. Ískaldur af krana á aðeins
550 kr.
Veitingahúsið Café Aroma
Café Aroma er þægilegur veitingastaður í hjarta Hafnarfjarðarbæjar þar sem góð þjónusta, tónlist og spennandi matargerð skapa notalega stemmingu.
Veitingarnar okkar einkennast af léttu samspili hefðbundinna og framandi rétta þar sem greina má áhrif frá öllum heimshornum. Áherslan er lögð á fjölbreytni til þess að viðskiptavinir okkar geti á öllum tímum fundið það sem freistar.
Yfir daginn er súpu og salatbarinn vinsæll auk smárétta en matarmiklar samlokur, kjöt og sjávarfang þegar kvöldar. Tertuborðið freistar með kaffinu auk úrvals annara ís- og eftirrétta. Á barnum er að finna léttvín og bjór í úrvali auk heitra og kaldra drykkja. Á laugardagskvöldum troða upp tónlistarmenn og skemmta gestum fram eftir nóttu.
Frá glæsilegum og björtum veitingasal okkar er einstakt útsýni yfir höfnina ekkisíst þegar gefur að líta stórkostlegt sjónarspilið þegar sólin gengur til viðar með skip og báta í forgrunni.
Póstlisti
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Snillingurinn Júlladiskó töfrar fram seiðandi tóna af sinni alkunnu snilld. Þeir sem mæta með nælurnar sem við dreyfðum nýverið fá frían drykk á barnum. Hlökkum til að sjá þig..